Plóman

úr handraðanum

Próflestir og jólavon

Kveldvinnan er latri kvöð,
kvíðir núna prófi;
ef aurum sínum eyddi ei hröð
vær´ei auður lófi.

Leitt er það hve löstur sá
leikur greyið grátt;
himnafeðga halla blá
horfa má nú til um sátt.

Kvelur efi kvinnuna;
kvurt mun þetta leiða.
Hugur hennar vinnuna
herða má og skeiða.

En hugurinn er hálfur
horfinn trölla til,
einmana eins og álfur
um aftans bil.

Vaka mun þó vonin sú:
Að vinnan göfgi svanna,
braggast muni hennar bú
og birtast ljósið sanna;

Að ljómi jóla ljós um borg,
lýsi alla ranna,
kætin tifi Guðs um torg
og tæra gleðin sanna.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home