Plóman

úr handraðanum

Spakmæli

Ástin er sem vín, sumir eru bindindismenn, en aðrir eru alltaf fullir, sumir drekka rauðvín, en aðrir vodka. Og ef það rennur einhvern tíma af manni, þá segja timburmenn óneitanlega til sín.

Ef ástin er gefandi ættirðu að leggja rækt við han, en ef hún slítur þig í sundur, settu þá í þvottavélina og farðu að gera eitthvað af viti!

Forleikurinn er aðalatriðið hvað kynlíf snertir. Forleikur getur jafnvel staðið árum saman og ef hann er fullkominn er hægt að sleppa samförum, því þá verða þær algjört aukaatriði.

Hreint hjarta, hrein nærföt og að gera hreint fyrir sínum dyrum eru aðalatriðin í lífinu.

- Öll eftir J.B.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home