Plóman

úr handraðanum

Hamingjan

Það er enginn betri tími en einmitt núna til að vera hamingjusöm/samur!
Hamingjan er ferðalag, ekki áfngastaður. Svo þú skalt vinna eins og þú þarfnist ekki peninga, elska eins og þú hafir aldrei verið særð/ur og dansa eins og enginn sé að horfa á þig!

Ást

Mennirnir elska í þeim tilgangi að vera elskaðir, en englarnir elska í þeim tilgangi að veita ást.

- Alphonse de Lamaratine

Hlátur

Fyrst allt er aðeins sýn fullkomin eins og hún er, hvorki góð nér ill, viðurkenning eða höfnun, má alveg skellihlæja!

- Long-Chen-Pa

Addition

Homme intelligent+femmeintelligent=romance
Homme intelligent+femme bête=bon coup
Homme béte+ femme intelligente=mariage
Homme béte+femme béte=grossesse

Spakmæli

Ástin er sem vín, sumir eru bindindismenn, en aðrir eru alltaf fullir, sumir drekka rauðvín, en aðrir vodka. Og ef það rennur einhvern tíma af manni, þá segja timburmenn óneitanlega til sín.

Ef ástin er gefandi ættirðu að leggja rækt við han, en ef hún slítur þig í sundur, settu þá í þvottavélina og farðu að gera eitthvað af viti!

Forleikurinn er aðalatriðið hvað kynlíf snertir. Forleikur getur jafnvel staðið árum saman og ef hann er fullkominn er hægt að sleppa samförum, því þá verða þær algjört aukaatriði.

Hreint hjarta, hrein nærföt og að gera hreint fyrir sínum dyrum eru aðalatriðin í lífinu.

- Öll eftir J.B.

Blues

I got blues in my mealbarrel
Blues up on the shelf
I got blues in my mealbarrel
Blues up on the shelf
Blues in my bedroom
´cause I´m sleepin´by myself

Um stefnumótavefinn Private.is

Ertu graður? Ertu gröð?
Greddufólk er hér í röð.
Mest þess snatt um eitt það snýst
að snapa drætti, það er víst!

Jól

Nóttin vart mun verða löng,
vex minn hjartastyrkur.
Inni er bjart við yl og söng,
úti svarta myrkur.

The Way We Walk - Sex in The City

...eitt ráð enn:...berðu höfuðið hátt...dillaðu túttunum...sveiflaðu bossanum...láttu þér líða vel!

Ástin í lífi piparmeyjar anno 2005

"...var að uppgötva að ég fann Stóru Ástina í lífi mínu fyrir löngu síðan. Ég hafði bara ekki gert mér grein fyrir því, fyrr en mig dreymdi hann, mér til mikillar skelfingar, brunninn og klesstan.
Fann það þá svo skýrt og greinilega að ég get ekki hugsað mér lífið án HANS - bílsins míns!"

Góður vinur...

* er gulli betri
* getur gert kraftaverk
* lýsir up daginn eins og engill
* skammar mann
* huggar mann
* og hlær að manni og með manni

Mjúkt hjarta

"Ef hjarta þitt er að mýkjast,blóðið að hitna, hugurinn að verða sneggri og sál þín að snúa til lifandi friðar, þá ertu á framabraut.
Aðeins með því að bera ekki hatur í brjósti hefur mér tekist að lifa svo lengi."
- Sir Winston Churchill

Vandræðatetur

Farðu nú, feldmjúki kisinn minn,
finndu þér annað skjól.
Hættu haldlausu sýsli og vinn,
haltu á betra ról.

Best er að eiga sitt eigið ból
blíðasti kisinn minn.
Brátt mun skína þér bjartari sól
og braggast hagur þinn.

Ástin

"Ef þú hugsar um konuna þína á meðan þú fylgist með æsispennandi fótboltaleik, þá ertu ástfanginn af henni ennþá."
- Clark Gable

Dagurinn í dag

Daginn í dag átt þú;
gefðu honum allt sem þú megnar,
svo einhver finni í kvöld
að það er gott að þú ert til.

það sama á við um karlmenn og vín:

Með aldrinum verða þau lélegu súr og þau góðu betri.
- Cicero

Listin

...þvær ryk hversdagsins af sálinni.
- Pablo Picasso

Ljóð

Hafaldan hjá Agó
dynur án afláts
á strandberginu
eins er ást mín
linnulaus

- Óþekkt japanskt skáld

Um fegurðina

"Það fegursta sem hægt er að upplifa er hið leyndardómsfulla. Sá sem ekki þekkir það og er ófær um að undrast og hrífast, er með nokkrum hætti dáinn og auga hans brostið."
- Albert Einstein

Heilræði

Góður sæfari biður ekki um meðbyr,
hann lærir að haga seglum eftir vindi.

Occidente sole (ad amicum)

(Við sólsetur, til vinar míns)

Við skulum sól
sömu báðir
hinsta sinni
við haf líta;
létt mun þá leið
þeim er ljósi móti
vini studdur
af veröld flýr.

Jónas hallgrímsson

Ille dies utramque ducet ruinam.
- Horaz

Góð vísa er aldrei of oft kveðin

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt,
kjark til að breyta því sem ég get breytt
og vit til að greina þar á milli.

Vissirðu...

...að englar geta flogið af því að þeir taka tilverunni svo létt....

Jamms...

Vonsku kveikja, vekja harm,
vel þér ekki sæmir.
Þú skalt líta í eigin barm
áður en þú dæmir.

H.Ó.

Umburðarlyndi

"Han ejede den ubegrænsede tolerance som kommer af total ligegyldighed."
- Carl Hammarén

Umhugsunarefni fyrir næstu kosningar?

"Why does a tax increase cost you two hundred dollars
and a substantial tax cut save you thirty cents?"
- Peg Bracken
American humorist

Hvað er það þrennt sem drykkur einkum örvar?

"Maður lifandi, rautt nef, svefn og þvag. Kvensemina vekur hann, og svæfir, hann vekur girndina, en svæfir getuna."
- Makbeð
(Helgi Hálfdánarson íslenskaði)

Svartur dagur

Munið þið?
20. mars 2003 var einn af svörtu dögunum í veraldarsögunni.
Þá hófst innrásin í Írak.

Veit einhver...

...hvað "guðsfræ" er?

Kona

Andardráttur hennar er eins og hunang kryddað negul,
munnurinn unaðslegur sem þroskað mangó.
Að kyssa hörundið er líkast því að bera lótusblóm að vitum sér.
Naflinn felur í holu sinni heilt safn af kryddi.
Unaðinn sem síðan bíður þekkir tungan ei,
en henni er fyrirmunað að segja frá honum.

Srngarika, Kumardadatta (12. öld)

Konfektspeki frá Marabou

"Hjärtlighet bygger på viljan at dela med sig av livets goda."

??? Von að barnið spyrji...

"Hvorfor siger du ikke bare "godnat" når vi går i seng mor? Hvorfor siger du altid "gudskelov?"

Næturþanki

Á loftinu er kæti og kliður
þótt klukkan sé orðin tólf.
Og þá lýstur þanka niður:
Að þak mitt er annars gólf!

Nils Ferlin
(þýð. Magnús Ásgeirsson)

Ást

"Þú lifir til þess að læra að elska, þú elskar til þess að læra að lifa.
Það er lexían þín."
- Mirard

Tilvitnun

"[...]...eins og guð sagði einu sinni - réttilega, finnst mér..."
- Margaret Thatcher

Próflestir og jólavon

Kveldvinnan er latri kvöð,
kvíðir núna prófi;
ef aurum sínum eyddi ei hröð
vær´ei auður lófi.

Leitt er það hve löstur sá
leikur greyið grátt;
himnafeðga halla blá
horfa má nú til um sátt.

Kvelur efi kvinnuna;
kvurt mun þetta leiða.
Hugur hennar vinnuna
herða má og skeiða.

En hugurinn er hálfur
horfinn trölla til,
einmana eins og álfur
um aftans bil.

Vaka mun þó vonin sú:
Að vinnan göfgi svanna,
braggast muni hennar bú
og birtast ljósið sanna;

Að ljómi jóla ljós um borg,
lýsi alla ranna,
kætin tifi Guðs um torg
og tæra gleðin sanna.

Andvaka

Hellirigning hálfa nátt
hélt fyrir mér vöku.
Halda mátti að himnagátt
hefði fengið innantöku!

Life

Life is not measured by the number of breaths we take, but by the number of moments that take our breath away!